Aðalvalmynd

Innskráningar kubbur

Kominn heim!

30. nóvember 2009 klukkan 23:47
Þá er maður byrjaður að safna upp drasli í kringum sig á heimavelli. Má nú búast við margföldun drasls.

Listi

27. nóvember 2009 klukkan 11:01
Soffía manaði mig til að gera tónlistarlista, eins og hún gerði. Ég ætla að verða við því, með smá breytingu. Ég ætla að taka plötur "áratugarins" í stað laga og ég ætla að móta hann úr tveimur listum í stað eins. Ég ætla að nota 20 bestu plötur áratugarins samkvæmt NME og Uncut og smíða minn topp 10 lista úr þeim plötum. Íslenskar plötur detta eðlilega út af þessum sökum. Geri kannski metnaðarfyllri lista þegar áratugurinn er búinn (2001-2010) en þetta dugar í bili. Tekið skal fram að allir svona listar hafa eitt markmið: fá fólk til að rífast um hvað er með, hvað er ekki með og í hvaða röð.

Þetta eru plöturnar sem eru í boði:

Uncut

20 - Amy Winehouse Back to Black
19 - Bruce Springsteen The Rising
18 - Kate Bush Aerial
17 - The White Stripes Elephant
16 - LCD Soundsytem Sound of Silver
15 - Radiohead In Rainbows
14 - Primal Scream XTRMNTR
13 - Gillian Welch Time (The Revelator)
12 - Portishead Third
11 - The Flaming Lips Yoshimi Battles the Pink Robots
10 - Fleet Foxes Fleet Foxes
9 - Ryan Adams Heartbreaker
8 - Bob Dylan Modern Times
7 - The Arcade Fire Funeral
6 - Robert Plant & Alison Krauss Raising Sand
5 - The Strokes Is This It
4 - Brian Wilson Smile
3 - Wilco A Ghost is Born
2 - Bob Dylan Love and Theft
1 - The White Stripes White Blood Cells

NME
20 - Blur Think Tank
19 - The White Stripes White Blood cells
18 - The White Stripes Elephant
17 - Sufjan Stevens Illinois
16 - The Streets A Grand don‘t come for free
15 - Queens of the Stone Age Songs for the deaf
14 - Radiohead Kid A
13 - The Shins Wincing the Night Away
12 - At the Drive In Relationship of Command
11 - LCD Soundsystem Sound of Silver
10 - Radiohead In Rainbows
9 - The Streets Orignial Pirate Material
8 - Interpol Turn on the Bright Lights
7 - Arcade Fire Funeral
6 - PJ Harvey Stories from the City, Stories from the Sea
5 - Yeah Yeah Yeahs Fever to Tell
4 - Arctic Monkeys Whatever People Say I am, That‘s what I‘m not
3 - Primal Scream XTRMNTR
2 - The Libertines Up the Bracket
1 - The Strokes Is This It

 

Augljóslega er ekki hægt að velja plötur sem maður hefur ekki heyrt (sem eru þó nokkrar, þó maður hafi heyrt einhver lög af öllu held ég). Valið á listann minn fer eftir bæði gæðum og áhrifum.

 

Kalli

10 Back to Black
9 Elephant
8 Love and Theft
7 A Grand don't come for free
6 In Rainbows
5 Whatever People Say I am, That's what I'm not
4 Stories from the City, Stories from the Sea
3 Is This It
2 Funeral
1 White Blood Cells

Sparnaðarráð Reykjavíkurborgar: brjóta lög

25. nóvember 2009 klukkan 14:04
Sveitarfélagið mitt hefur komið fram með ótrúlega góða sparnaðartillögu: við skerum grunnþjónustu svo mikið niður að það er lögbrot og spörum milljarð!

Það á sem sagt að fækka kennslustundum í grunnskóla. Í lögum er lágmark kennslustunda ákveðið en Reykjavíkurborg hafði einu sinni þá góðu stefnu að hafa fleiri stundir en þetta lágmark. Nú er hins vegar svo komið að fjárhagsáætlun borgarinnar á að gera ráð fyrir að borgin brjóti lög.
Grunnþjónusta verður ekki skorinn niður var sagt.

Erfitt

21. nóvember 2009 klukkan 17:20
Stundum er lífið svolítið flókið og erfitt og ekki eins og manni langar til að það sé. Það var ekki svoleiðis í gær. Þá fékk ég grillaðan humar, skálað var fyrir bjargvættum og kokkum með hvítvíni á milli þess sem hölunum var sporðrennt í gríð og erg. Heimsóknir, slúður, spjall og súkkulaði litaði líka daginn. Stundum ...

Biblíu-útskýrng

15. nóvember 2009 klukkan 12:04
Því svo elskaði kennarinn nemendur sínar að hann gaf einkamilta sitt til að hver sem er hætti að sparka í næsta mann.

...

Á þriðja degi var hann færður á milli deilda og fékk að borða.

Þessi skynsami drengur

14. nóvember 2009 klukkan 10:49
Nokkuð ljóst að ég lét ekki 30 manns sparka í mig af öllu afli aftur í bráð, jafnvel þó málefnið sé gott. Er nokkuð viss um að kostnaður við sprungið milta sé nokkru hærri en safnaðist með þessum aðförum. En þetta er allt á batavegi, ég má meira að segja standa upp og rölta á salernið og borða. Þvílíkur lúxus.

Fæða guðanna

09. nóvember 2009 klukkan 20:33
Ég er viss um að couscous hefur aldrei verið fæða neinna guða eða guðlegra vætta. Til þess er það of fljótlegt og einfalt en guðirnir hafa sjaldnast haft í mörgu að snúast svo þeim hefur væntanlega ekki þótt þörf á easy quick fix í matarmálum. En fyrir okkur hin er þetta hin mesta þarfaþing, sérstaklega þegar komið er heim af æfingu og maður verður að borða núna til að koma í veg fyrir að maður brenni skinni og beinum.

Gjafmildi

08. nóvember 2009 klukkan 12:42
Hvaða undarlega trend er það að geta ekki gefið í góð málefni nema að einhver ákveðinn fjöldi fólks gangi í einhverja flettismettis grúppu? Það er eitthvað svo auðkýfingslegt, að geta ekki gefið nema allir viti af því að þú hafir gefið.

Svo fæ ég líka pínu á tilfinninguna að fólk sem getur ekki gert gott nema hrópa um það á torgum sé alltaf að laumast til að gera einhver illvirki þegar enginn sér.  

Klukkan

Auglýsing

Leit