Together Through Life
28. apríl 2009 klukkan 12:36
Í gær kom nýji Bob Dylan diskurinn út. Að sjálfsögðu bjargaði ég einu eintaki af deluxe útgáfunni úr Skífunni áður en dagurinn var úti. Gripurinn er hinn glæsilegasti, 10 laga diskur, dvd með viðtali sem var klippt úr No Direction Home myndinni, geisladiskur með útvarpsþætti Dylans þar sem þemað er vinir og nágrannar auk þess sem að í kassanum er plakat og límmiði. Eina sem ég á eftir að skoða er dvd diskurinn en allt hitt er fínt stöff (veit samt ekki hversu margir Dylan aðdáendur eru líklegir til að plástra bílinn sinn/húsið sitt með límmiðum).
Skil reyndar ekki alveg þá hugsun sem heyrst hefur um diskinn að hann hljómi allt öðruvísi en Modern Times og Love and Theft. Röspuð röddin er sú sama og hljómurinn í sveitinni sem spilar með svipaður. Gott stöff sem allir ættu að eiga!

Hvað var þetta?
25. apríl 2009 klukkan 08:14
Dimmision í gær, helstu atburðir:
framlag mitt til menntunarmála þjóðarinnar loksins viðurkennt að fullu í ljóðaformi.
"þú inspírarðir mig" ræða frá nemenda
füsball leikur á Hemma og Valda
dansstuðið á Karamba
Niðurstaða:
Gærdagurinn var Skins þáttur (kíkið á surfthechannel punktur com til að horfa á). Kreisí gaman, takk fyrir mig.

Víðavangur
23. apríl 2009 klukkan 20:28
Í dag er ég búinn að gera ekki neitt, skrifa tölvupósta, upplýsa fólk um fréttir á síðu Sagnfræðingafélags Íslands, síðu Ármanns, Flettismetti og plögga Hugsandi (setti inn grein þar á þriðjudaginn). Þar sem ég er líka að blogga þarf ég bara að breyta msn one-linernum til að útmála mig víðast hvar á þeim víðavangi sem internetið er. Telst það ekki næg útivera?
Held það bara. Best líka að ofgera sér ekki á fyrsta sumardegi, byrja á smáum skrefum og vinna sig upp í eitthvað stærra.

Allur matur á að fara upp í munn og ofan í maga!
21. apríl 2009 klukkan 10:56
Fékk mér kjúklingabringur eftir æfingu í gær. Karamelseraði fyrst eplaskífur, steikti svo kjúklingabitana upp úr smjöri (enn þá svolítil sykurbráð á pönnunni), kryddaði með salt, pipar, fersku chilli, þurrkuðu kóríander, lime og hunangi. Hýðishrísgrjón með eplunum og kjúklingnum á disknum en ástralskt riesling í glasi. Einstaklega gott!
En það er margt eftir í matarmálum. Nú var verið að birta lista yfir 50 bestu veitingastaði í heiminum og ég hef enn ekki farið á 48 þeirra. Ef þið eigið pantað borð á El bulli, Fat duck eða NOMA vil ég a) vita af því og b) koma með! Sætti mig líka við hina staðina á listanum - amk eru númer 36 og 41 með bestu matarupplifunum mínum ...

Síðasta partí vetrarins
19. apríl 2009 klukkan 17:44
Í gær var taekwondo partý hér á bæ og er það að öllum líkindum síðasta partý vetrarins. Engin stórslys urðu en nokkuð almenn ánægja og gleði. En óvenjulegast við þetta teiti var að enginn reykti og svalirnar voru því ónýttar. Þakka gestum gærkvöldsins fyrir góða skemmtun og hlakka til að fá fleiri partýgesti í sumar.
Morgunkorn
18. apríl 2009 klukkan 10:04
Seríós er mjög skemmtilegt orð - á frummálinu bendir það til gleði (eins og litirnir á pakkanum gera líka) en á tungum landans breytast litlu gleðihringirnir í eitthvað alvarlegt. Spurning hvort breyta eigi litnum á íslenskum Cheerios pökkum þessu til samræmis?
Orðabókaraðstoð Amy og Bob
14. apríl 2009 klukkan 19:55
Þar sem ég stóð með býfluguna á bakinu og ryksugaði stigaganginn sem mest ég mátti heyrði ég nokkur lög. Þegar hlustað er á lög í stafrófsröð, eins og ég geri á ipodinum, koma mismunandi merkingar orða oft skýrt fram. Þannig fékk ég smá áminningu um lítið orð á stigaganginum, orðið var "just".
Amy Winehouse spurði hvenær við getum verið bara vinir: Just Friends. Strax á eftir söng Bob Dylan um konu sem brotnar eins og lítil stúlka: Just like a Woman. Saman bentu lögin svo á þriðju merkingu orðsins "just": réttlæti. Ja, reyndar bentu þau kannski frekar á skort á réttlæti í samskiptum kynjanna.
Lauk þar með bæði húsverkunum og kennslustund í boði stjarnanna.

Nemendur í ýmsum myndum
13. apríl 2009 klukkan 21:12
Esjuganga á laugardaginn, át á sunnudaginn og hlaup í dag - held ég sé bara í nokkuð góðu keppnisformi eftir að hafa stundað þessar ólympíugreinar undanfarna daga. Auðvitað át ég á mig gat alla dagana en sunnudagurinn var keppnis.
En nú lýkur páskafríinu. Allar stóru ritgerðirnar yfirfarnar, næstum engin geisladiskaverkefni (geyma eitthvað skemmtilegt) en stríðsprófið verður klárað áður en nemendur ná í mig. Í yfirbótaskyni ákvað ég að reyna að komast til Pakistan í sumar (trúarbragðasaga næsta vetur og svona). Svo til um leið greindu fjölmiðlar frá því að "Talibanar væru að færa sig upp á skaftið" og hefðu tekið yfir stærra svæði í norður hluta Pakistan (þeim part sem lýtur víst út eins og Sviss - en það er allt í lagi, er búinn að sjá Sviss). Karakoram fjallgarðurinn og Lahore eru ekki undir stjórn talibana (sem þýðir nemendur!) en þangað er förinni aðallega heitið. Kosningar í Afganistan falla utan míns tímaramma svo ég sæki þá ekki um að vera með í kosningaeftirlitinu þar. Annars hefði það verið spennandi kostur til að vinna sér inn fyrir kostnaði.
Það sem ég óttast varðandi þessa ferð er hluti af undirbúningnum. Ég er nefnilega nokkuð viss um að sprautur séu nauðsynlegar...

Gullið í Esjunni
10. apríl 2009 klukkan 09:46
Kökuboð í Kópavogi og svo sítrónu og kryddjurta maríneraður kjúlli á grilli og ofni með hrísgrjónum, grísku salati og grískri hvítlaukssósu í kvöldmat í austurbænum. Fyrir matinn var grillað flatbrauð með hummus, pestó og hvítlauksolíu í boði en eftirrétturinn samanstóð af þrenns konar ís, súkkulaði, vanillu og jarðaberjabættum vanilluís en með ísnum var súkkulaðisósa og jarðaberjamauk. Nokkuð ánægður með matinn og sérstaklega að heilgrillun kjúklingsins gekk vel (kol til hliðar og kjúlli í miðjunni, lokið á og látið vera í tæpan klukkutíma).
Fór svo á Draumalandið og leist vel á. Fyrir utan augljósa kjánahroll þegar maður heyrði í Haarde og Sverrisdóttur ásamt prestinum að blessa náttúruspjöllin og níðingsháttinn fannst mér athyglisvert hvað Geir H. H. finnst gaman að gera lítið úr konu sinni í ræðustól. Hugsanlega eru tengsl milli þessa litla álits sem maður virðist hafa á konu sinni og því að hann tók við mútum frá sama fyrirtæki og hún hætti í stjórn hjá vegna siðferðislegra vafasama atriða.
Á morgun mun ég gleðjast yfir því að gullið í Esjunni er ekki í vinnanlegu mæli og ganga upp að Steini ásamt góðum hóp frændfólks míns.

Matarfríið
07. apríl 2009 klukkan 13:37
Dökkt, létt brauð með pestó, spægipylsu og osti í seinni morgunmat. Jarðeplagratín í hádegismat (gullauga, sætar, steinseljurót, laukur og hvítlaukur ásamt smjöri, rjóma, timjan, salti og pipar). Kex og mjólk í eftirmiðdaginn. Lambasalat í kvöldmat (blandað kál, sneiðar af lambalæri, tómatar, vorlaukur, balsamik og parmesan). Eitthvað súkkulaðisnarl eftir það.
Já, gærdagurinn var bara nokkuð góður frídagur þó ég hafi farið yfir nokkrar ritgerðir, tvö verkefni og mætt á einn fund.

Þetta er allt skilgreiningaratriði
06. apríl 2009 klukkan 11:35
Nú er komið páskafrí og tóm gleði hér á bæ af þeim sökum. Svo mikil að brunað var til Keflavíkur í partý til að halda upp á það. Reyndar þarf ég að fara yfir 16 tólf síðna ritgerðir, 38 geisladiskaverkefni, 22 próf og slá inn einkunnir og umsagnir vegna fyrirlestra í þremur hópum á meðan páskafríinu stendur. En það er samt páskafrí!
Munurinn á venjulegum degi og páskafrísdegi felst s.s. ekki í því hversu mikið er unnið. Breytingin felst aðallega í því hvar er unnið og hvað er gert í vinnustundum. Nú er auðvitað engin kennsla en það útskýrir ekki gleðina með páskafríið (nemendur, sérstaklega þeir sem þetta lesa, eru upp til hópa fínir). Gleðin felst í því að vera heima, geta lagt sig þegar maður vill, getað eldað þegar maður vill, borðað þegar og það sem maður vill. Gleðin felst í því að eiga von á góðum mat alla daga.

Þá eru úrslit kosninga ljós
04. apríl 2009 klukkan 09:48
Jæja, þá eru kosningarnar búnar - líkt og allir hafa vonandi tekið eftir. Ég geri ráð fyrir að ný stjórn verði dugleg og vinni vel saman. Um leið bind ég vonir við að hún hafi þarfir og hagsmuna allra að leiðarljósi en ekki útvaldra vina.
Já, í gærkvöldi var kosningavaka eftir spennandi kosningar til stjórnar Nemendafélags Menntaskólans við Hamrahlíð. Hamingjuóskir til þeirra sem vilja taka slíkt til sín.