Meira um mannkynssögu
30. ágúst 2008 klukkan 21:45
Í gær varð konungur poppsins, Michael J. Jackson, fimmtugur. Glöddust þá gjörvöll heimsbyggðin. Varla var gleðin þó nokkurs staðar meiri en á Tryggvagötu 6 í gærkvöldi. Þar var sungið, stompað og búin til ljósashow með ódauðlegum lögum kappans.
Ábending: ef nágranni þinn syngur ásamt vinum sínum um að bjarga heiminum, gera hann að betri stað fyrir mig, þig og allt mannkyn - syngdu með, að minnsta kosti í hjarta þínu. Ekki drepa vonarneista munaðarlausra barna í Afríku með því að spilla gleðinni sem gæi bjargað barninu. Ekki hringja á lögguna.
Að lokum örlítil pæling. Í hinum stórgóða lagi "They don't care about us" er meðal annars sungið um að ef Martin Luther væri lifandi létin hann þetta ekki viðgangast. Lagið er frábært (sérstaklega með auka læv stompleikurum) en MJ hefur eitthvað misreiknað sig í mannkynssögunni. Martin Luther var nefnilega gyðingahatari - sem passar ekki alveg við anti-rasisma skilaboð lagsins. Martin Luther King hins vegar hefði átt heima í þessari línu.

Super Mario og snjóbretti
29. ágúst 2008 klukkan 14:34
Tengjast bæði Íslands-og mannkynssögu 1500-1800. Vildi bara láta ykkur vita því þetta verður common knowledge á næstu árum.
Potta lukka
26. ágúst 2008 klukkan 19:17
Var í fínni pottulukku (ekki pottloki eins og sumir héldu að það væri) á sunnudaginn. Í framhaldi af því dettur mér í hug að vera með framhaldspottlukku: koma með mat fyrir 3-4 einn dag og fá svo næst mat frá öðrum. Mætti útfæra þannig að einn dagur vikunnar væri pottlukka eða að hver og einn hefði sérstakan dag til að sjá um að fæða samstarfsfélagana. Fengu þessar hugrenningar byr undir báða vængi þegar boðið var upp á köld forsoðin jarðepli annan daginn í röð. Ekki fullsoðin í gær, í dag grútlin en með hitastig sem passar jógúrti betur en jarðepli.
Hvar var Carla Bruni?
25. ágúst 2008 klukkan 10:40
Af hverju var frú Carla Bruni ekki að strjúka franska landsliðinu? Hafði fjarvera hennar ef til hluti af sigri frakka? Fór Þorgerður út í afbrýðiskasti eftir að hafa séð Dorrit á forsíðum blaðanna með Loga berann fyrir framan sig?
Fjölmiðlamenn hafa margt að rannsaka í kringum Ólympíuleikana en þessar spurningar hljóta að fá forgang.
Fjölmiðlamenn hafa margt að rannsaka í kringum Ólympíuleikana en þessar spurningar hljóta að fá forgang.
Miklatún kl. 7.35 á sunnudagsmorgun!
22. ágúst 2008 klukkan 14:48
Úrslitaleikurinn í handbolta á ÓL verður sýndur á risatjaldi á Miklatúni. Allir að mæta! Munið eftir morgunmat, teppi og freyðivíni (kampavín fyrir sigurvissa).
Klæddur að níjunum
21. ágúst 2008 klukkan 07:55
Nýnemar mæta í dag og það gera kennarar líka, fyrsti formlegi fundur vetrarins er í dag. Til að búa mig undir þetta fékk ég mér sítrónupasta á hvítum disk, tvisvar í gærkvöldi. Einu sinni í kvöld mat og einu sinni í seinni kvöldmat eftir að hafa náð afar lélegum millitíma í skyrtustraujun. Og ekki síður til undirbúnings klæddi ég mig í þrisvar þrjá. Reyndar eru vinnu-inniskórnir mínir ekki nægilega kúl svo ég er aftur orðin að fimmu. Áfram talnaspeki!
Back to school to prove to daddy I´m not a fool
18. ágúst 2008 klukkan 20:46
Á meðan Ídiló nartar í kaktusinn reyni ég að gera eitthvað örlítið gáfulegra eins og að undirbúa kennslu, sem hefst á föstudaginn. Stundum held ég samt að útkoman sé voðalega svipuð.
Lostæti
17. ágúst 2008 klukkan 11:09
Sveppir steiktir upp úr heimagerðu kryddsmjöri, beikon tekið af pönnunni rétt áður en það verður krispy, egg með sprungnu blómi timjan og salti, parmesan ostur skorin yfir, refasmári með. Vatn drukkið með. Það er gott að eiga hráefnisafganga úr matarboði á sunnudagsmorgni.
Lögregla og borgarverðir
16. ágúst 2008 klukkan 16:29
Sá fullt af löggum í bænum í gær sem vöktu ómælda hrifningu Norsara sem var með í för. Enda brugðust þeir vel og fljótt við áflögum og upphlaupum ruglaða liðsins. Kúdos til löggunar.
Það er gaman að elda 5 rétta máltíð fyrir 12 með 11 mismunandi réttum. Tiltektin og dagurinn eftir er annað mál.
Það er gaman að elda 5 rétta máltíð fyrir 12 með 11 mismunandi réttum. Tiltektin og dagurinn eftir er annað mál.
Ólympískar íþróttir
14. ágúst 2008 klukkan 12:03
Það þarf að fækka greinum á Ólympíuleikunum. Hlaup skal fara fram í tveimur greinum (og tveimur flokkum: karla og kvenna): 100 metra hlaup og tveggja tíma hlaup (hver hleypur lengst). Sama í sundi, nema þar væri 50m frjáls aðferð og 10 mín. sund. Kastgreinum mætti sömuleiðis fækka.
Þó mætti bæta við einni grein: ólympískar keppnislýsingar. Adolf Ingi hefði klárlega sigrað í útvarpsflokknum fyrir frammistöðu sína í leik Íslands- Þýskaland í handknattleik.
Þó mætti bæta við einni grein: ólympískar keppnislýsingar. Adolf Ingi hefði klárlega sigrað í útvarpsflokknum fyrir frammistöðu sína í leik Íslands- Þýskaland í handknattleik.
RE 202 tilkynnir
14. ágúst 2008 klukkan 00:46
Ganga: afgreidd á flettismetti.
Útilega: afgreidd hér .
Uppvöskunarvél (sem sumir kalla uppþvottavél): afgreidd í öðru hverju orði.
Ídiló: see her to believe her.
Sumarbústaðaferð fjölskyldunnar: fín en full mikill akstur.
Útilega: afgreidd hér .
Uppvöskunarvél (sem sumir kalla uppþvottavél): afgreidd í öðru hverju orði.
Ídiló: see her to believe her.
Sumarbústaðaferð fjölskyldunnar: fín en full mikill akstur.
Axarberg
08. ágúst 2008 klukkan 23:50
Þegar gengið er um Ófærudal liggur leiðin meðfram Svartahnúksfjöllum. Þarna gekk ég um daginn, á leið frá Álftavötnum í Skófluklif (með smá viðkomu í Strútslaug). Um umræddan dal rennur áin Ófæra og í norðri liggja Ófærudalsbrýr. Áin er þó ekki ófær, ekki frekar en að Kaldaklofskvísl sé sérstaklega köld eða nái nema minnstu dvergum upp í klof. Í Bjórgil sást enginn bjór og enga brennivínslykt lagði frá Brennivínskvísl. Örnefnin ullu þannig sum hver nokkrum vonbrigðum. Eitt stóð þó bæði upp úr og undir nafni, Axarberg.
Axarberg nefnist austasti hluti Svartahnúksfjalla. Þegar gengið er úr Álftavatnakrók og yfir í Ófærudal sést vel hvernig nafnið er tilkomið. Upp úr sandfjöllunum rís nefnilega klettur mikill sem svipar óneitanlega til axarblaðs. Sagan segir að þar sé risinn Bergur grafinn og hafi hann haft exi sína með í gröfina en svo mikil var öxin að vexti að hún stendur nú ein til minningar um Axar-Berg. Þó segja sumir að Svartahnúksfjöllin séu í raun skrokkur Bergs. Í öllu falli kemur öxin víðar við í landslagsmyndum á Fjallabaki. Margir kannast við Eldgjá en færri vita að hún myndaðist er áðurnefndur Bergur dró exi sína á eftir sér í þunglyndiskastinu sem dró hann til dauða.