New York, pt. II
25. mars 2008 klukkan 14:01
Gott og gaman. Er eiginlega ennþá saddur, enda planið oft ekki flóknara en að fara á milli matsölustaða. Svo stíft var þetta matarprógram að ég náði bara að fara í eitt safn. Tróð mér reyndar í einhverjar búðir á milli máltíða.
Næst á dagskrá: verkefnayfirferð, undirbúningur fyrir kennslu og kennsla.

Besti matur í heimi?
21. mars 2008 klukkan 21:15
Ef lesendur eiga leið um New York og vilja fjárfesta þá mæli ég með Restaurant Daniel . Maturinn er dýr en rosalega góður, umhverfið flott og þjónustan sú albesta sem ég hef upplifað.
Ég borðaði: Foie Gras, tælenskan "snapper", humar, kola, lamb og súkkulaðiköku. Sex réttir. Cloudy Bay Chardonnay fram að kjöti og svo Zinfadel rautt frá Napa Valley sem ég er búinn að gleyma hvað heitir (minnir að Alexander og Starlite hafi komið við sögu). Áður en fyrsti réttur kom fengum við þrjá mismunandi smakkrétti og eftir eftirrétt heitar smákökur (tvisvar). Allt framúrskarandi gott og vel út lítandi.

Gleðin
14. mars 2008 klukkan 16:16
Í rokksöguáfanganum sem ég kenni reyni ég að ýta nemendum út í hardcore sagnfræði - enda allir að fást við eitthvað sem þeir hafa áhuga á og því um að gera miklar kröfur til fólks. Hluti af þessu var á þessari önn að skrifa vefritsgrein. Tvær þeirra birtust á Hugsandi. Önnur greinin er um Saturday Night Fever en hin um Spice World. Óhætt að mæla með báðum greinum. Þriðja greinin sem birtist á minni Hugsandi vakt var eftir laganema og fjallaði um Bittorrent deilur.
Jæja, þá hafa allir eitthvað að hugsa um yfir páskana.

Grjón
13. mars 2008 klukkan 15:54
1 og hálfur bolli af grautargrjónum sett í pott ásamt 3 bollum af mjólk. Soðið, mjólk bætt við og hrært í. Hversu lengi? Af því er virtist í gær, endalaust. En síðustu sporin er nauðsynlegt að hafa rúsínur með í pottinum (ég átti bara ljósar rúsínur (sultana rúsínur) en þær komu að sama gagni). Kanilsykur með miklum kanil og nýmjólk út á. Borðað þangað til oltið er útaf vegna ofneyslu.
Nr. 5 og 21
12. mars 2008 klukkan 15:10
Sá fyrri með kjúkling, hinn með nauti. Krúa Thai. Afar gott og losar líka örlítið um stíflurnar í hausnum. Gott fyrir svefnin.
Ef maður kaupir sælgæti, frostpinna og royal-búðing í 10-11 fyrir klukka 7 að morgni dags er automatískt gert ráð fyrir að maður sé í próflestri. En ó, nei ekki var það nú tilfellið.

Skanks!
10. mars 2008 klukkan 13:20
Ekta góður matur í gær í foreldrahúsum: lambaskankar í ofni í 3-4 tíma ásamt rauðvínsflösku (þeas innihaldinu), lauk, sveppum, timjan, baconi. Sósan gerð úr soðinu og jarðeplamús með. Um að gera að nýta sunnudaga í svona matreiðslu.
Á laugardaginn sá ég um matreiðsluna á sama stað: kjúklingabringur skornar í tvennt (butterfly), smurðar með pestó og sólþurkaður tómatur og mozzarella kúlur lagðar ofan á. Rúllað upp, pinna stungið í gegn, osti stráð yfir.
Mæli annars með báðum myndunum sem ég sá í bíó um helgina: No Country for Old Men og El orfanato. En hvaða gagn er annars í að þekkja rekstraraðila Regnbogans ef maður getur ekki fengið grænan frostpinna? Rekstraraðilarnir (lesist: sjoppustarfsmennirnir) tóku þó mátulega mikið mark á röðinni og fá plús þar. Aðrir nemendur, sem sóttu sömu myndir á sama tíma fá líka plús í kladdann.

'tis the season
08. mars 2008 klukkan 18:12
Aðalfundir eru vinsælir á þessum árstíma. Komst sem betur fer hjá því að fara í stjórn Félags sögukennara fyrr í dag. Þáði bara súpu, brauð og útrunnið smér ásamt te-bolla og skráði mig í Brussel-ferð í byrjun júní. Stefni svo á ráðstefnu sögukennara á Kýpur í apríl 2009, þar verður fjallað um átakasvæði. Spennandi staðsetning fyrir slíkt.
Nennti ekki á tvo aðalfundi í þessu blíðskaparveðri og sleppti því fundi Sagnfræðingafélagsins (sem ég hefði þá skráð mig í um leið). Í þessu dýrindsveðri hef ég svo notið nýju sólgleraugnanna. Þau myndu sóma sér vel með svona hatti.
New York eftir viku!
Maturinn í mars
04. mars 2008 klukkan 08:03
Árshátíðarmatur.
Kjúklingur í karrí, átti að vera kjúklingabringur fylltar með mozzarella og pestó en Salóme fékk þá hugmynd kvöldinu áður og mér fannst óþarfi að láta hana og Gunna borða sama matinn þrisvar í röð.
Spaghetti a la ekkert í ísskápnum.
Mars mánuður byrjar vel. Í gærkvöldi eldaði ég fyrstu máltíðina heima fyrir og var það áðurnefnt pasta. Þegar spaghetti var soðið var því hellt í sigti, smjör brætt í pottinum og hvítlaukur og rautt chili mýkt í smjörinu áður en pastanu var aftur bætt út í pottinn. Þá var niðurskornum mozzarella bolta blandað saman við og tveimur litlum tómötum. Parmesan rifinn yfir og borið fram með smjör-og hvítlaukssteiktum strengjabaunum (hálft lime kreist yfir).
Engar umræður við matarborðið en lestur á rokksögu (allt frá djass-fusion og chicago blús til Spice Girls) hélt mér vakandi fram eftir kvöldi. Ólíkt tölvunni minni sem hefur ekki kveikt á sér síðan á sunnudag. Kannski ég gefi henni eitthvað að borða í kvöld.