Ađalvalmynd

Innskráningar kubbur

Ţá er ţađ ákveđiđ

28. september 2007 klukkan 07:06
Ammmmæli hér um helgina. Réttara sagt ammmmmælisuppáhald en tilefnið sjálft ekki fyrr en eftir helgi. Hingað munu koma allskonar fólk og vonandi skemmta sér hið besta.

Í gærkvöldi var ótrúlega ó-innspírandi matur í matinn - kjúklingabringubitar, bacon, hrísgrjón og tómatar. Ekkert spes gert við neitt af þessu. Mér til afsökunar var ég glorsoltinn og klukkan orðin rúmlega hálf tíu þegar ég kom heim. Reyndar var ágætis matur í hádeginu í gær - Bjössi bauð upp á reykta skinku, brúnuð jarðepli og appelsínusósu. Í dag verður það þó að öllum líkindum baka dauðans.

Uppgjöf

23. september 2007 klukkan 10:19
Fimmtudagur: svo svangur og þreyttur þegar ég kom heim 15 tímum eftir að ég fór út um morguninn að ég meikaði ekki einu sinni að borða afganga. Skellti mér því á bacon-ostborgara og franskar frá Vitabar.
Föstudagur: Blóðug nautalund, pakkapiparsósa og franskar úr sjoppu með Oddi. Klassískt bræðrafæði.
Laugardagur: Grísakótilettur með eplsósu og pasta, eldað af pabba heima hjá Salóme og Gunna. Ég keyrði svo Odd í partí í einhverju Zombie-hverfi lengra en úti í rassgati.
Sunnudagur: matur með afa, pabba og Oddi. Býst við lambakjöti.

Annars er það helst í fréttum að Valli kom hér klukkan 6 í morgun og er að sofa á sófanum. Á hann var ráðist inni á Ellefunni. Tekinn hálstaki aftanfrá, missir meðvitund og sparkað í andlitið á honum. Lausn eigandans? Ekki að kæra til lögreglu heldur að finna mennina og lemja þá. Traustvekjandi.

Haust

19. september 2007 klukkan 21:39
Þarf að segja meira?

Þeir sem svara spurningunni játandi, lesið áfram.


Nýslátruðu sætu me-me sem brytjað hafði verið niður í þægilega parta var stungið með heim í dag. Þeas part af me-me. Fallegur, næstum bleikur bógurinn var látinn í svarta steikarofnpottinn ásamt gróft skornum gulrótum, sætri kartöflu, lauk, heilum kartöflum og hvítlauk (auk einhvers slatta af sjávarsalti, nýmöluðum svörtum pipar, þurrkuðu oregano og basil. Smá vatn sett í pottinn ásamt lambakrafti. Ofninn hitaður í 200°C og me-me me-meaðist þar í rúman klukkutíma (þá var það tekið út og stungið með hitamæli sem sagði 71°C). Þá var allt orðið mjúkt og fagurt. Ekki nennti ég að búa til sósu fyrir þetta mjúka kjötstykki en þess utan hafði ég klassískt námsmannasalat (blönduð lauf, parika, tómatur og balsam-edik) og þurrsteiktan smjörveltan ferskan aspas.

Með hausti sem þessu er drukkið rauðvín frá heitara landi: Jacob's Creek, Shiraz-Cabernet 2004. Með hausti er hlustað á tónlistarmenn gefa vinnuna sína í þágu góðs málstaðar (jafnvel þó að UNICEF sé etv ekki besta leiðin til að hjálpa börnum í neyð). Þar stóðu allir sig vel. Ljómandi

Tónleikagagnrýni (dæmt af útvarpssendingu).
Grrrrr stóð sig ágætlega en greip ekki, hvorki með lögum né öðru. Soundspell voru fínir en ég á líka Keane-diskinn og læt hann duga í bili (en ef nemendur ná þá kaupi ég diskinn). Skakkamangage voru ágæt en ekki grípandi frekar en fyrri daginn. Sá þau einu sinni í London og finnst þau betri þá (3 ár síðan) en kannski var það bara að sjá þau á sviði sem gerði gæfumunin. Ólíklegt að ég kaupi disk með þeim í bráð en finnst þau samt vera að standa sig vel í því sem þau eru að gera. Þá komu Retro Stefson á svið. Ég býst við að eftir 10 ár verði sagt "þau eru nú bara 26-27 ára krakkarnir í þessari hljómsveit". Góður flutningur á sömu góðu lögunum og maður hefur áður heyrt en getur ekki keypt. Hefði þó viljað heyra Salvadore og Dópistar á Vitabar sem sérstök lög frekar en í medley eins og raunin varð. Ég kaupi plötu/bol/viskastykki með þeim og leið og það kemur út. Reykavík! eru alltaf í stuði og eru skemmtileg hljómsveit. Ég hef áður beðist velvirðingar á fyrri gagnrýni minni á þessari ágætu sveit. En jafnvel í útvarpi fer hinn ágæti penni Grapevine af einhverjum sökum í einhverjar fínar taugar. En góð lög, vel flutt og rétta viðhorfið hjá landsbyggðarstráknum bjargar því auðvitað og meria til. Enda fjárfesti ég um daginn í plötunni með langa nafnið eftir þá. Síðastir voru Jeff Who? með vel flutt popp-rokk með þeirra alkunnu aðferð og áferð. Prýðilega gert og allt í góðu. Merkilegt finnst mér þó að nú er í sveitinni strákurinn sem spilaði dinner tónlistina á dimmisjón minni fyrir nokkrum árum og var þá að spila fyrir eldri nemendur.

Chili og hvítlaukur

18. september 2007 klukkan 21:24
Hægt er að byggja ýmsa rétti í kringum hvítlauk og chili (pasta getur t.d. verið gott með bara olíu/smjöri, hvítlauk og chili) og í gær og í dag var einn slíkur borðaður - tælenskur kjúklingur með snöggsteiktu grænmeti og hrísgrjónum.

Þetta er allt voða einfalt. Tvö niðurskorin meðalstór chili (eitt með fræum, hitt frælaust) er mýkt á meðalheitri pönnu með 5-6 niðurskornum hvítlauksrifjum. Svo er 4 kjúklingabringum sem hafa verið skornar í munnbitastærð bætt á pönnuna. Þegar bitarnir hafa tekið lit á alla kanta er vænum slurkum af soya sósu og nam pla (tælensk fiskisósa) skvett yfir allt saman ásamt 2 teskeiðum af strásykri. Þetta er tilbúið eftir nokkrar mínútur (athuga vel hvort kjúllinn sé ekki örugglega gegnumsteiktur).

Flest grænmetið (rauðlaukur, lítil sæt karftafla og gulrót) er skorið í þunnar og litlar sneiðar og mýkt í heitri olíu á vel heitri pönnu. Þá er snjóbaunum og niðurskorinni papriku bætt út á. Þegar allt lítur út fyrir að vera tilbúið (crunchy en eldað) er soya sósu, ostru sósu, sesam olíu og sherry/púrt víni bætt út á í smá stund.

Drekkið nóg af vatni og svolítið Stump Jump hvítvín með.





Vín og matur

17. september 2007 klukkan 21:59
Almennt fær fólk ýmiskonar ruslpóst með rafrænum póstberum og hendir því umhugsunarlaust póstum sem lofa gulli og grænum skógum (lesist: viagra, stóru typpi og pening). Því komast póstar sem í raun og veru bæta tilveru manns auðveldlega í gegn.

Í hverri viku fæ ég sendingu frá litlu íslensku fjölskyldufyrirtæki sem heitir Vín og matur. Þar hef ég meðal annars komist á snoðir um vínútsölur. Segi og skrifa: vínútsölur! Þar eru gerð góð kaup á framúrskarandi vínum. Efnahagslegt ramadan eður ei - vínútsölur lætur engin fram hjá sér fara.

Og ef maður þarf á annað borð að troðast í Kringlunni þá er eins gott að komið sé við í Vínbúðinni. Hún hefur þann helsta kost að vera vel búin, meðal annars af vínum frá Víni og mat. Um daginn keypti ég þar The Stump Jump árgang 2006 sem er Reisling, Sauvignon blanc og Roussanne/Marsanne blanda úr McLaren dalnum í Ástralíu. Mjög gott vín (ekki láta skrúftappann blekkja þig) sem er líka gott eftir fjóra daga opið inn í kæli.

Kollegar sverja við góðar hugmyndir á fimmta glasi. Því miður voru bara 3 eftir svo ég fékk bara þá hugmynd að blogga um vínið.

Ađ láta kjaft hćfa skel

15. september 2007 klukkan 21:01
Laugardagsæfingar í Taekwondo eru sniðugar og skemmtilegar. Í dag fórum við sem mættum á Konditori Copenhagen á Suðurlandsbraut eftir æfingu. KC býður upp á hlaðborð í hádeginu á 800 kall. Við komum þarna um eitt leytið, þá var fullt af mat búinn. Ekkert bacon t.d. og þrátt fyrir að tveir starfsmenn hafi verið að fylgjast með hlaðborðinu þurfti að biðja tvisvar um meiri ost, djús, egg, fleiri glös og þess háttar. Ekki til fyrirmyndar þjónustan á þessum bæ. Brauðið og áleggið var gott og gúllassúpan alveg í fínu lagi. Leiðinlegt þegar enginn starfsmaður veit eitthvað og sama hver þeirra er spurður þá er ekkert hægt að gera til að koma til móts við viðskiptavini.

Þá er nú  annað að mæta í 3ja ára afmæli í Kópavogi þar sem boðið er upp á 23 sortir af allskonar gúmmelaði og nóg af því fyrir 40 í viðbót við þá 20 sem mættu. Maturinn var svo mikill og góður að jafnvel skrækjandi barnahópur  berjandi á trommur og ýmis áslátturshljóðfæri minnkuðu ekki gleðina.

Ég ákćri!

14. september 2007 klukkan 09:00
Ég ákæri hér með kapitalískan hugsunarhátt vesturlanda. Ekki vegna stríðsglæpa, náttúrunauðgana eða þrælahalds í þróunarríkjum. Ákæruatriðið er stærra en svo, hér er um grundvallaratriði að ræða.

Ákærða er gert að sök að hafa búið til (til vara ýtt undir) græðgi og ofát. Ákærði hefur með þessu stofnað lífi fjölda fólks í hættu. Í þessu (próf)máli er ákærði hins vegar sóttur til saka fyrir eitt ákveðið og skýrt brot.

Í gærkvöldi brenndi ég mig á heitri Devito's pizzu.

Risaeđlubollur međ smjörsteiktum trufflum

12. september 2007 klukkan 20:59
Nei djók. En í alvöru - hver borðar hreindýrabollur?

Reyndar finnst mér ég vera voða fancy í kvöld: salat í sér skál, frönsk rauð hrísgrjón, ferskur aspas og koli með tómat og basilikku. Lítið vesen (fór í Fylgifiska) en þetta er samt herramans matur. Muna að kreista smá sítrónu þegar búið er að steikja aspasinn á grillpönnunni (má líka gufusjóða). Og svo svolítil smjörklípa.

Kanill og rúsínur

10. september 2007 klukkan 23:13
Ofan á þunnt brauð var í dag sett framandleg túmatsósa, ávöxtur, laukur, ostur og fleira. Var þetta kryddað meðal annars með kanil og rúsínum.

Mér fannst mexikóski maturinn minn bara góður.

"Mörđur hét mađur er kallađur var gígja."

09. september 2007 klukkan 23:20
Í gærmorgun fór ég af stað, ásamt fríðu föruneyti, í Njálsbúð. Áður en ég lagði af stað hrærði ég saman hummusi og keypti brauð í Sandholtsbakaríinu. Á leiðinni í bakaríið sá ég fyrsta nútíma Mörðinn.

Óţćgilegt en gaman

05. september 2007 klukkan 21:17
Í dag fór ég í heimsókn til afa og spurði hann hávísindalegra en óþægilegra spurninga. Allt fyrir framfarir og framfarir alls staðar!

Svo röltum við í Nóatún og keytum lambakjöt og kartöflur sem við átum svo þrátt fyrir mistök við eldamennsku sem orsökuðu seigt kjöt á diskinn.

Það var nú samt bara gaman að kíkja í heimsókn til afa.

Sjálfsblekking 101

04. september 2007 klukkan 22:10
Í gær var gerð tilraun til að elda naglasúpu með ungversku twisti. Helgaðist matarvalið aðallega af vöruúrvalinu í hverfisbúðinni en þaðan var dregin askja af nautagúllasi, bréf af beikoni, sveppir, tómatar, paprika og aðrar nauðsynjar sem þarf til að draga lífið næstu daga.

1. Ekki sérlega ódýr matur
2. Ekki fljótlegur matur

Þá er komið að sjálfsblekkingunni: nota líka efni sem var til fyrir og fara með möntruna "það sem til er í skápnum er ókeypis - kostnaður reiknast bara af hlutum sem fara beint í matreiðslu". Í gúllassúpuna var því bætt ferskum chili, paprikudufti, tómat sem þegar var til, lambasoði,lauk, hvítlauk og sellerí. Þetta dugar sem matur fyrir einn með bolla af hrísgrjónum og líter af köldu vatni.

Ramadan

02. september 2007 klukkan 11:34
Nú hefst efnahagslegt ramadan á Laugaveginum. September verður sparnaðar mánuður - ekkert bruðl en samt góður matur og eitthvað af víni. Í lok ramadan er slegið upp veislu, gæti verið að haldið verði í þá hefð enda dauðaárið að nálgast.

Síðasta vika var vika misheppnuðu eldamennskunnar. Nú er stefnan sett á 30 mín. eldamennsku og kannski nestiseldamennsku einhverja daga, a la Soffía.

Nú þarf að hugsa og sinna sjóræningaskyldum á flettismetti.

Klukkan

Auglýsing

Leit