Í tilefni dagsins
31. maí 2009 klukkan 16:09
er rétt að tala tungum og þá sérstaklega viðeigandi að spá í trúarleg málefni, líkt og gert er í þessari stórfyndnu Biblíu. Svo má líka lesa sér til um gríska goðafræði á sömu tungu.
Annars er úrlausnarefni dagsins hvort ég eigi etv að fljúga til Vegas og ferðast þaðan um Norður Mexikó og suðvestur ríki BNA frekar en að fljúga til Mexikóborgar og keyra þaðan um sömu svæði. Það er auðvitað lógískara að fljúga ca þangað sem maður ætlar og sparar töluverða keyrslu. En bilaleigubíll er þrisvar sinnum dýrari í Vegas en í Mexikó. Flugið er reyndar aðeins ódýrara til Vegas. Lúxusvandamál eru líka vandamál.

Svona eru ákvarðanirnar teknar fyrir mann
29. maí 2009 klukkan 22:23
Flettismetti er með stæla, leiðindi og hægagang svo það er ekkert hægt að gera þar núna. Allt annað á netinu virkar hins vegar fínt. En fyrst fb vill ekki vera memm þá nenni ég ekkert að hanga lengur með þessu neti, er bara farinn að gera eitthvað annað. Hvað gerir maður annars annað en að hanga á netinu?
Ákvarðanir
28. maí 2009 klukkan 15:14
Ég fékk hugmynd um daginn, í kjölfar þess að Pakistanferð var blásin af. Nú er planið að fljúga til Mexikó og keyra svo þaðan og norður til Bandaríkjanna og skoða löndin í leiðinni. Verst bara að eiga ekki einkaþotu því þá þyrfti ég ekki að skoða fargjöld til Mexikó svona nákvæmlega. Það er auðvitað algjört klúður hvað það er erfitt að bera saman flugfargjöld. Mig munar t.d. lítið um einn aukadag hér eða þar en það breytir öllum forsendum flugsins og erfitt að fá raunverulegan samanburð á þessu. Einkaþotan myndi líka þýða að ég þyrfti ekki að fljúga til og frá sama staðnum sem gæfi auka tíma í ökuferðina sjálfa (fáranlega mikið dýrara að fljúga frá A til B og svo C til A heldur en A til B og B til A).
Allt gefur þetta svo manni með ákvörðunarfælni töluvert of marga möguleika til að velja á milli. Valkostir eru ofmetnir og oft óþarfir og svo ráðum við ekki miklu sjálf hvorteðer. En eina ákvörðun hef ég þó tekið: kreppu og pestum er sagt stríð á hendur farið verður í roadtrip!

Fertugastaogþriðjaári er lokið
28. maí 2009 klukkan 00:08
Í dag lauk 43. starfsárinu og fögnuðu því allt viðstatt samstarfsfólk mitt. Enda ekkert eftir þegar þessu hafði verið lýst yfir annað en að slíta fundinum og þá gátu allir farið í (örugglega) mjög skemmtilega vorferð um Reykjanes.
En starfinu er ekki lokið þó skólanum hafi verið slitið. Eftir á að láta undan kröfum um tiltekt á skrifstofu og kennslustofum, búa til tvo nýja áfanga og endurskipuleggja gamla auk þess sem eitthvað þarf að fínpússa og lagfæra í öðrum.

Uppskriftir
24. maí 2009 klukkan 22:47
Eitt stykki kálhaus rifinn á fjóra diska, 3 kokteiltómatar og hálfur venjulegur tómatur á hvern disk og einni rauðri papriku skipt jafnt á milli diskanna. Þá er eitt og hálft bréf af baconi klippt í bita og steikt - að hluta til stökkt og hluta til mjúkt. Þá er eitt búnt af ferskum aspas steikt upp úr kryddsmjöri (smjör, parmesean, basil, timjan, pipar) og bæði aspas og baconi bætist út á diskana áður en parmesan ostur er rifinn yfir.
Borðist í góðum félagsskap með hvítvíni. Félagsskapurinn tryggir svo áframhaldandi skemmtun yfir kvöldið en þar er ekki allt prenthæft.
Síðari uppskrift kvöldsins:
Borða grillað nautakjöt annan daginn í röð og fá þá boð um að skella sér á frábæra tónleika með Lhasa de Sela á Nasa. Þetta er uppskrift að öðru góðu kvöldi og frábærum endi á helginni.

Fyrst enginn annar nennir að blogga
21. maí 2009 klukkan 00:14
Þá set ég hér inn húsfélagapælingu mína.
Í samhliða heimi á ég heima í mjög stórri blokk í fínasta hverfi borgarinnar og er ég á efstu hæð ásamt nokkrum öðrum. Ég nýt því útsýnisins og margra þeirra kosta sem samneytið við nágrannanna býður upp á. Ég er, eins og hinir á efstu hæðinni, ekki í húsfélaginu. Ég nota lyftinu og krefst þess að stigagangurinn sé vel þrifinn (einhver verktaki úr úthverfi sér um það fyrir húsfélagið) en sé enga ástæðu til að borga í sameiginlegan sjóð. Við á efstu hæðinni erum nefnilega með eigin félag og það þjónar mér ágætlega. Það félag er með fínan bar (Efsta-bar) í sameignlegu rými hér uppi þar sem gott er að slaka á. Á meðan þræta aðrir íbúar um hvað skuli gera á vegum húsfélagsins og hvernig. Þá er nú ljúft að tala við félaga sína á Efsta-bar um hvað við séum nú öðruvísi en hinir, að við búum í rauninni í raðhúsi eða jafnvel einbýlishúsi hér uppi á meðan skítugu plebbarnir sem öllu vilja ráða séu hinir sönnu blokkarbúar.
Í samhliða heimi er ég Ísland og bý í þeirri sjálfsblekkingu að ég sé ekki hluti af stærra samhengi, og að ég eigi að standa utan Evrópusambandsins.

Platon
19. maí 2009 klukkan 21:06
Manni finnst alveg sjálfsagt að vera ekki hugsandi í svona blíðu - taka sér bara pásu og njóta lífsins en puða ekki við að nota þessar gráu sellur. En svo hugsar maður um Platon í bakandi sólinni í Aþenu og veltir fyrir sér hvort það sé ekki fyrst núna - í góðviðrinu - sem maður á möguleika á að gera eitthvað gott úr pælingum sínum. Spái í því ef það verður +20° í meira en tvo mánuði í röð.
Bloggleti 400
17. maí 2009 klukkan 22:56
Hlusta á Dylan og drekk kókoshnetu-ananassafa þegar þessi fjögurhundraðasta færsla er skrifuð. Færslan sjálf er s.s. merkileg og því getur innihaldið ekki verið það líka ...
Jæja ...
17. maí 2009 klukkan 22:31
Undirbúningur hófst í dag. Enda ekki seinna vænna, stóratburður nálgast. Lífið er nefnilega stundum eins og Júróvision - sigurvegarnir halda ekki alltaf næstu keppni. Þegar ABBA sigraði á sviðinu í Brighton höfðu Lúxemborgarar unnið árið á undan en fengu Breta (sem voru í öðru sæti) til að halda keppnina. Og nú hefur Lúxemborg ETA hópsins beðið Bretland hópsins um að taka næsta fund að sér. Það var samþykkt med det samme en þó með því skilyrði að Lúxemborg héldi annan fund tveimur vikum síðar.
En það þarf að plana svona fundi líkt og Eurovision-keppni, hvert smáatriði verður að vera planað þó að nóg pláss sé fyrir fíflalæti. Nú þarf að huga að undirspilinu - söngurinn verður hins vegar live.

Together Through Life
28. apríl 2009 klukkan 12:36
Í gær kom nýji Bob Dylan diskurinn út. Að sjálfsögðu bjargaði ég einu eintaki af deluxe útgáfunni úr Skífunni áður en dagurinn var úti. Gripurinn er hinn glæsilegasti, 10 laga diskur, dvd með viðtali sem var klippt úr No Direction Home myndinni, geisladiskur með útvarpsþætti Dylans þar sem þemað er vinir og nágrannar auk þess sem að í kassanum er plakat og límmiði. Eina sem ég á eftir að skoða er dvd diskurinn en allt hitt er fínt stöff (veit samt ekki hversu margir Dylan aðdáendur eru líklegir til að plástra bílinn sinn/húsið sitt með límmiðum).
Skil reyndar ekki alveg þá hugsun sem heyrst hefur um diskinn að hann hljómi allt öðruvísi en Modern Times og Love and Theft. Röspuð röddin er sú sama og hljómurinn í sveitinni sem spilar með svipaður. Gott stöff sem allir ættu að eiga!