Aðalvalmynd

Innskráningar kubbur

Ekki blóta börnin góð

07. janúar 2010 klukkan 15:53
Þetta er svo erfitt. Þetta er svo stórt. Hvers vegna þarf ég að gera þetta? Getur einhver annar gert þetta?

Hér er ekki vísað til unglings sem nennir ekki að taka til í herberginu sínu/fara út í búð fyrir foreldrana heldur umræðu fullorðinna einstaklinga um að kjósa. Bú-fokking-hú segi ég nú bara! [Takið líka eftir að þjóðin er hér unglingur en ekki ungabarn sem skítur upp á bak - sú líking verður bráðum jafn þreytt og icesave-bollinn]

Helvítis djöfulsins framtíð!

06. janúar 2010 klukkan 08:21
Hvers vegna gátum við ekki fengið Back to the Future framtíð frekar en Max Max?

Berlín er annars frábær borg og tvímælalaust þess virði að koma sér aftur að Spree ánni. Sjáum til hvort maður kíki á haustlitina.

Frumheimildir

14. desember 2009 klukkan 23:54

Ég var að koma úr kafi. Ég kíkti á upphaf þessa bloggs (sem tók við af Brighton blogginu í nóvember 2006 en pavilion bloggið stóð 2004-2006) og sá þar blammeringar, palladóma, tilraunir til fyndni og yfirskrúfaðan hátíðleika varðandi sjálfan mig. Sem sagt stór skemmtileg lesning. En þessar ævafornu heimildir um ástir, áhyggjur og góðan mat hafa ekki bara skemmtanagildi heldur vildi ég athuga hvað hafði komið mér til þess að blogga yfir höfuð. Ég er nefnilega búinn að vera rosa andlaus eitthvað í blogginu undanfarið. Maður getur verið snar-fyndinn á flettismetti og ítarlegur í raunheimum og hver þarf þá á bloggi að halda?

Kannski er bara erfitt að láta sér detta eitthvað sniðugt í hug að skrifa þegar maður upplifir hversu brothættur maður er. Kannski stafar þetta af því að ég kann ekki mannasiði frekar en að taka til (ásetningurinn er til staðar en ég fer ekki með þetta alla leið) ...

Tuð

08. desember 2009 klukkan 19:47
Ecco búðin á Laugaveginum lokaði í haust, pappír settur fyrir glugga og tilkynningin um að búðin væri lokuð vegna breytinga. Þær tóku meira en mánuð (gott ef ekki tvo) enda hefur nú komið í ljós að þær voru umtalsverðar. Í stað hefðbundinna skórekka og hillna þar sem auðveldlega mátti sjá spariskó, inniskó, götuskó, gönguskó, karlaskó, kvennaskó og barnaskó og greina þar á milli eru nú komnar allt öðruvísi útstillingar. Herðatrjáaslár eru áberandi en líka ýmis borð eftir því sem ég sá í gegnum gluggann. Ekki er þó um nýstárlegar skóútstillingar að ræða heldur hefur skóbúðin lagt upp laupana og í staðinn er kominn skrantúristabúð. Má ég þá heldur biðja um fleiri öldurhús og næturklúbba heldur en þessa viðurstyggð sem dreifir sér um alla miðborgina?

Ef fleiri búðir breytast í skrangjafavörubúðir fyrir túrista mun ég æla af reiði.

Comic relief

04. desember 2009 klukkan 10:19
Í dag geta allir tekið Office dansinn og almennt látið eins og fífl því í dag er Dagur rauða nefsins. Það er því um að gera að fíflast með rauða nefið sitt og ekki verra ef hægt er að safna í bauk í leiðinni.

Svo gerast allir heimsforeldrar! 

Kominn heim!

30. nóvember 2009 klukkan 23:47
Þá er maður byrjaður að safna upp drasli í kringum sig á heimavelli. Má nú búast við margföldun drasls.

Listi

27. nóvember 2009 klukkan 11:01
Soffía manaði mig til að gera tónlistarlista, eins og hún gerði. Ég ætla að verða við því, með smá breytingu. Ég ætla að taka plötur "áratugarins" í stað laga og ég ætla að móta hann úr tveimur listum í stað eins. Ég ætla að nota 20 bestu plötur áratugarins samkvæmt NME og Uncut og smíða minn topp 10 lista úr þeim plötum. Íslenskar plötur detta eðlilega út af þessum sökum. Geri kannski metnaðarfyllri lista þegar áratugurinn er búinn (2001-2010) en þetta dugar í bili. Tekið skal fram að allir svona listar hafa eitt markmið: fá fólk til að rífast um hvað er með, hvað er ekki með og í hvaða röð.

Þetta eru plöturnar sem eru í boði:

Uncut

20 - Amy Winehouse Back to Black
19 - Bruce Springsteen The Rising
18 - Kate Bush Aerial
17 - The White Stripes Elephant
16 - LCD Soundsytem Sound of Silver
15 - Radiohead In Rainbows
14 - Primal Scream XTRMNTR
13 - Gillian Welch Time (The Revelator)
12 - Portishead Third
11 - The Flaming Lips Yoshimi Battles the Pink Robots
10 - Fleet Foxes Fleet Foxes
9 - Ryan Adams Heartbreaker
8 - Bob Dylan Modern Times
7 - The Arcade Fire Funeral
6 - Robert Plant & Alison Krauss Raising Sand
5 - The Strokes Is This It
4 - Brian Wilson Smile
3 - Wilco A Ghost is Born
2 - Bob Dylan Love and Theft
1 - The White Stripes White Blood Cells

NME
20 - Blur Think Tank
19 - The White Stripes White Blood cells
18 - The White Stripes Elephant
17 - Sufjan Stevens Illinois
16 - The Streets A Grand don‘t come for free
15 - Queens of the Stone Age Songs for the deaf
14 - Radiohead Kid A
13 - The Shins Wincing the Night Away
12 - At the Drive In Relationship of Command
11 - LCD Soundsystem Sound of Silver
10 - Radiohead In Rainbows
9 - The Streets Orignial Pirate Material
8 - Interpol Turn on the Bright Lights
7 - Arcade Fire Funeral
6 - PJ Harvey Stories from the City, Stories from the Sea
5 - Yeah Yeah Yeahs Fever to Tell
4 - Arctic Monkeys Whatever People Say I am, That‘s what I‘m not
3 - Primal Scream XTRMNTR
2 - The Libertines Up the Bracket
1 - The Strokes Is This It

 

Augljóslega er ekki hægt að velja plötur sem maður hefur ekki heyrt (sem eru þó nokkrar, þó maður hafi heyrt einhver lög af öllu held ég). Valið á listann minn fer eftir bæði gæðum og áhrifum.

 

Kalli

10 Back to Black
9 Elephant
8 Love and Theft
7 A Grand don't come for free
6 In Rainbows
5 Whatever People Say I am, That's what I'm not
4 Stories from the City, Stories from the Sea
3 Is This It
2 Funeral
1 White Blood Cells

Sparnaðarráð Reykjavíkurborgar: brjóta lög

25. nóvember 2009 klukkan 14:04
Sveitarfélagið mitt hefur komið fram með ótrúlega góða sparnaðartillögu: við skerum grunnþjónustu svo mikið niður að það er lögbrot og spörum milljarð!

Það á sem sagt að fækka kennslustundum í grunnskóla. Í lögum er lágmark kennslustunda ákveðið en Reykjavíkurborg hafði einu sinni þá góðu stefnu að hafa fleiri stundir en þetta lágmark. Nú er hins vegar svo komið að fjárhagsáætlun borgarinnar á að gera ráð fyrir að borgin brjóti lög.
Grunnþjónusta verður ekki skorinn niður var sagt.

Erfitt

21. nóvember 2009 klukkan 17:20
Stundum er lífið svolítið flókið og erfitt og ekki eins og manni langar til að það sé. Það var ekki svoleiðis í gær. Þá fékk ég grillaðan humar, skálað var fyrir bjargvættum og kokkum með hvítvíni á milli þess sem hölunum var sporðrennt í gríð og erg. Heimsóknir, slúður, spjall og súkkulaði litaði líka daginn. Stundum ...

Biblíu-útskýrng

15. nóvember 2009 klukkan 12:04
Því svo elskaði kennarinn nemendur sínar að hann gaf einkamilta sitt til að hver sem er hætti að sparka í næsta mann.

...

Á þriðja degi var hann færður á milli deilda og fékk að borða.

Klukkan

Auglýsing

Leit